Við buðum upp á netmenntabúðir í vetur, í október og mars. Erindin voru öll tekin upp og sett inn á vefsíður netmenntabúðanna. Okkur þótti nauðsynlegt að Eymennt myndi eignast sína eigin vefsíðu til að gera efni þeirra aðgengilegra fyrir skólafólk landsins. Það er voða einfalt að muna eymennt.is þegar löngun til að fræðast hellist yfir mann. Á vefsíðunum tveimur er nefnilega heilmikið af fræðandi og gagnlegu efni. Endilega skoðið erindin og nýtið ykkur þessa ókeypis jafningafræðslu.
top of page
bottom of page
Comments